Persónuverndarskilmálar

Skilmálar Hugrekkis – ráðgjafar og fræðslu.

Þjónusta Hugrekkis – ráðgjafar og fræðslu er háð eftirfarandi skilmálum.

Þegar þú notar vefsíðuna eða kaupir þjónustu samþykkir þú þessa skilmála, vinsamlegast lestu vel yfir þá. Þú getur sent tölvupóst á hugrekki@hugrekki.is ef þú hefur spurningar um skilmálana. Hugrekki – ráðgjöf og fræðsla áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara.

Þjónustan er rekin af Hugrekki ehf. kt, 690818-1240, Furuvöllum 7, 600 Akureyri.

Hugrekki – ráðgjöf og fræðsla er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við þjónustuna. Hægt er að hafa samband með því að senda tölvupóst á hugrekki@hugrekki.is

Notkunarskilmálar

Sérstakir notkunar skilmálar Hugrekkis – ráðgjafar og fræðslu. Með því að samþykkja þessa skilmála þá ertu að veita upplýst samþykki fyrir vinnslu á persónuupplýsingum.

Hugrekki veitir meðferð og ráðgjöf bæði í fjarþjónustu og með viðtölum á staðnum.

Eftifarandi reglur gilda um notkun þjónustu hjá Hugrekki.

Í fjarþjónustu er eingöngu notaður hugbúnaðurinn Telemed í gegnum þjónustu Skræðu, sem þegar hefur fengið staðfestingu landlæknis um að það uppfylli kröfur um öryggi gagna og samskipta. Eingöngu er hægt að nýta sér fjarþjónustu Hugrekkis með því að skrá sig inn á svæðið www.heilbrigdi.is með rafrænum skilríkjum.

Hugrekki veitir ekki bráðaþjónustu og bendir fólki því á að hafa samband við neyðarlínuna 112 eða bráðamóttökur sjúkrahúsa í slíkum tilfellum.

Óheimilt er að nota aðgang sinn að fjarþjónustu Hugrekkis fyrir aðra en sjálfan sig.

Allt efni sem er á heimasíðu Hugrekkis, sem og vinnublöð og önnur vinna sem þjónustan felur í sér er varið höfundarrétti. Öll afritun á efni og opinber dreifing á þjónustunni er óheimil og getur það varðað við lög.

Þeir sem verða uppvísir að því að brjóta þessar reglur geta átt á hættu að þjónustu til þeirra verði hætt.

Persónuupplýsingar sem safnað er:

Persónugögn eru gögn sem hægt er að tengja við einstaklinga. Hugrekki – ráðgjöf og fræðsla safnar og vinnur eftirfarandi persónugögn sem hægt er að tengja við þig:

  • Upplýsingar um þig (Aðgangsupplýsingar) fela í sér eftirfarandi upplýsingar: 
    • Nafn
    • Tölvupóst
    • Heimilisfang
    • Símanúmer
    • Kennitölu
    • Upplýsingar um tengilið einstaklings í þjónustu ef við á (nafn, síma, heimilisfang), t.d. forráðamaður eða eiginmaður/kona.
  • Heilbrigðisupplýsingar (Sjúkraskrá). Samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr. 55/2009 skal heilbrigðisstarfsmaður sem fær sjúkling til meðferðar halda sjúkraskrá. Heilbrigðisupplýsingar eru upplýsingar sem verða til við meðferð sjúklings og heilbrigðisstarfsmanns.

Meðhöndlun á persónugögnum

Hugrekki – ráðgjöf og fræðsla notar persónuupplýsingar þínar eingöngu í þeim tilgangi að efna samning við þig um veitingu félagsráðgjafar og samtalsmeðferðar og til að uppfylla lagaskyldu veitanda heilbrigðisþjónustu um að halda sjúkraskrá um meðferðina.

Samkvæmt lögum um sjúkraskrár nr.55/2009 er óheimilt að eyða upplýsingum úr sjúkraskrá nema með samþykki landlæknis. Aðrar upplýsingar sem við geymum um þig eru geymdar eins lengi og nauðsyn ber til í þeim tilgangi sem þeirra var aflað. Einstaka upplýsingar geta verið geymdar lengur ef sérstakar reglur gilda t.d. skatta- eða bókhaldslög.

Hugrekki – ráðgjöf og fræðsla notast við sjúkraskrárkerfi Skræðu, PMO, til að safna og geyma persónugögn.

Persónugreinanlegar upplýsingar, ásamt öðrum gögnum, eru dulkóðaðar í gagnagrunni með 256 bita dulkóðun.

Öll samskipti milli skjólstæðings og sérfræðings innan Telemed eru dulkóðuð með SSL/TLS skírteini.

Tilgangur og heimild til vinnslu persónuupplýsinga

Tilgangur með vinnslu persónuupplýsinga og heimildir til vinnslu til fyrrnefndra gagna er eftirfarandi:

  • Vinnsla á upplýsingum um aðgangsorð og netfang eru nauðsynlegar til að veita skjólstæðingum rétt aðgengi að sérfræðingi, geta haft samband við viðkomandi, sent út reikninga eða fylgt eftir meðferð. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.
  • Vinnsla á heilsufarsupplýsingum (sjúkraskrá) er nauðsynleg til að skrá niður upplýsingar sem snúa að meðferðinni og framgangi meðferðar. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða. Einnig er veitendum heilbrigðisþjónustu skylt að halda sjúkraskrá og því er vinnsla nauðsynleg til að fullnægja lagaskyldu sem hvílir á þeim sem ákveður vinnsluna (ábyrgðaraðila).
  • Vinnsla á greiðsluupplýsingum er nauðsynleg til að skjólstæðingar geti greitt fyrir þjónustu Hugrekkis – ráðgjafar og fræðslu ef og þegar við á. Heimildin er samþykki þess sem persónuupplýsingarnar eru um (hins skráða) fyrir vinnslunni í þágu eins eða fleiri tiltekinna markmiða.

Rekstur heilbrigðisþjónustu

Hugrekki – ráðgjöf og fræðsla er rekin með leyfi frá Embætti landlæknis og hefur leyfi til fjarheilbrigðisþjónustu. Allir veitendur heilbrigðisþjónustu hjá Hugrekki – ráðgjöf og fræðslu eru með löggilt starfsleyfi frá Embætti landlæknis.

Skilmálar um greiðslu og afbókanir

Greiðsla er innt af hendi eftir hvert viðtal. Í öllum tilfellum er reikningur sendur viðkomandi og birtist krafa í heimabanka og reikningur sendur í tölvupósti til viðkomandi.

Mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði vegna þjónustu sem veitt ef af Hugrekki – ráðgjöf og fræðslu.

Greiðslumáti

Greitt er fyrir þjónustu Hugrekkis -ráðgjafar og fræðlu með því að greiða reikning sem sendur er í heimabanka viðkomandi.

Reikningur er sendur í tölvupósti sem hægt er framvísa til stéttarfélaga vegna greiðsluþátttöku en sum stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til að sækja veitta þjónustu.

Verð

Öll verð eru í íslenskum krónum og eru verð og upplýsingar um þjónustu birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Við áskiljum okkur rétt til verðbreytinga án fyrirvara.

Afbókanir

Hvert viðtal hjá félagsráðgajfa Hugrekkis er 50 mínútur. Viðtal þarf að afboða með að lágmarki 24 klst fyrirvara, að öðrum kosti er greitt fullt gjald fyrir viðtalið.

Hægt er að afboða viðtöl með því að senda tölvupóst á hugrekki@hugrekki.is eða með því að hringja í síma 779-1910.

Ábyrgð þín

Þú berð ábyrgð á að muna eftir að mæta í viðtalstímann þinn en þú getur séð hvenær þú átt bókaðan tíma á heimasvæðinu þínu á heilbrigdi.is.

Þú berð sömuleiðis ábyrgð á því að þú hafir næði á meðan þú ert í viðtalstíma hjá félagsráðgjafanum þínum í gegnum myndfundabúnað og að netsamband þitt og tækjabúnaður sé nægilega góður.