Eingöngu kennt í gegnum ZOOM
Markhópur:
Heilbrigðisstarfsfólk og aðrir fagaðilar sem vilja vinna ráðgjöf og meðferð í gegnum fjarþjónustu. Mikilvægt er að þátttakendur hafi lokið viðurkenndu námi í ráðgjafar- eða meðferðarvinnu (t.d. á sviði félags- eða heilbrigðisvísinda, markþjálfun eða öðru sambærilegu) og hafi reynslu af slíku starfi með skjólstæðingum. Takmarkaður fjöldi.
Markmið námskeiðsins:
Að efla fagaðila, kynna fyrir þeim og veita þeim grunn í því að veita faglega þjónustu í gegnum netið. Námskeiðið er í samvinnu við Símenntun Háskólans á Akureyri og Academy for Online Counselling & Pshycotherapy í Bretlandi (the Academy) www.acadtherapy.online.
Þetta námskeið er hugsað sem grunnur en mikilvægt er að afla sér víðtækrar þjálfunar í fjarvinnu til þess að tryggja bestu mögulegu vinnubrögð/meðferð á hverjum tíma.
– 12 klst:
Eingöngu kennt í gegnum Zoom
Umsagnir:
- Hve mikilvægt er að gæta fagmennsku þegar kemur að persónuvernd og hve vandrataður er sá vegur í heimi tækninnar.
- Varpaði skýru ljósi á þá þætti sem huga þarf að í fjarráðgjöf. Helstu þættir sem huga þarf að hjá fagaðila í ráðgjöfinni sjálfri t.d. faglegum ramma almennt bæði í stað og fjarráðgjöf. Gaf einnig innsýn inn í leiðir til að stunda fjarráðgjöf hvaða leiðir eru færar og hverjar ekki í ljósi persónuverndarlaga.
- Dýrmætt að námskeiðið skyldi hafa farið fram í „fjarbúnaði“ þannig að maður fékk beina reynslu af því að nota slíkan búnað, prófa sig áfram, gera mistök og læra af þeim. Lærdómsríkt að átta sig á þeim fjölmörgu atriðum sem þarf að hafa í huga við að vinna klíníska vinnu gegnum fjarfundabúnað.
- Mjög gagnlegt og flott námskeið, mér finnst gott að fá innsýn inn í lögin sem heilbrigðisstarfsfólk starfar eftir – gott að vera betur á tánum.
- Virkilega ánægð með námskeiðið og hefur staðist allar þær væntingar – þú hefur náð að miðla einstaklega vel og er ég öruggari að fara út í fjárþjónustu – opnar nýja sýn á ráðgjöf 🙂 Takk kærlega fyrir mig 🙂
- Það er þessi fagmennska og persónuverndaráhersla sem stendur upp úr. Það er að ýmsu að huga.