Samfélagsmiðlar

Hluti af starfi mínu sem félagsráðgjafi er að halda sambandi mínu og samskiptum við þá sem til mín leita á faglegum grunni. Þar af leiðandi mun ég ekki samþykkja vinabeiðnir á mínum persónulegu samfélagmiðlum eins og Facebook, Twitter, Instagram eða öðrum miðlum, frá þeim sem til mín leita. Það gildir jafnt um þá sem koma til mín á stofuna á Akureyri eða nýta sér fjarþjónustu. 
Ég mun heldur ekki taka við einkaskilaboðum á mínum persónulegu reikningum á slíkum miðlum en bendi á að Hugrekki er með facebook síðu þar sem hægt er að sjá ýmsar upplýsingar. Þá er alltaf hægt að senda tölvupóst á netfangið hugrekki@hugrekki.is eða hringja í síma 779-1910.  Ef ég sé mér ekki fært að svara í símann, skildu þá endilega eftir nafn og símanúmer og þá mun ég hringja í þig til baka.

Af persónuverndarástæðum og öryggi við þá sem til mín vilja leita, eru engar viðkvæmar upplýsingar sendar í gegnum samfélagsmiðla, t.d. Messenger, og mun ég ávallt óska eftir því að fólk hafi samband varðandi tíma sína og meðferð með tölvupósti eða í gegnum síma.