Eingöngu kennt í gegnum ZOOM
Á námskeiðinu er fjallað um það hvernig við tryggjum sem best góða nærveru í fjarþjónustu við viðskiptavini. Hvaða áskoranir fylgja því að samskipti fari fram t.d. í myndsamtali eða símtali og jafnvel með spjallforritum eða tölvupóstum. Við skoðum það hverju þarf að huga að þegar við færum okkur í stafræna miðlun.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum verkfæri sem þeir geta nýtt sér til að vera sem best til staðar fyrir sína viðskiptavini þrátt fyrir aðilar séu hver á sínum stað.
1 klst
Umsagnir:
- Að mörgu að hyggja, með nándina í gegnum skjáinn, hvernig fólk er stemmt og einnig að vera dugleg að benda fólki á það sem þarf að laga jafnóðum til að samtalið/fjarskiptin fari sem best fram.
- Voru margir punktar sem maður þarf að hafa í huga áður en maður byrjar að bjóða upp á fjarviðtöl.
- Mikið af gagnlegum punktum þrátt fyrir einungis 60 mín námskeið.
- Ýmis smáatriði hvað varðar framkomu og umhverfi í mynd í fjarbúnaði – og eiginlega bara allt sem um var fjallað um, samtölin milli leiðbeinanda og þátttakenda var líka gefandi. Frábær fyrirlesari.
- Gott að fara yfir helstu atriði og skerpa á vinnulagi þegar veitt er fagleg aðstoð í gegnum netið. Einnig fór hún yfir það hvað þarf að varast…góð áminning.
- Mjög gott í alla staði.