Námskeið & fyrirlestrar
Hér má sjá lista yfir ýmis námskeið og fyrirlestra sem Hugrekki hefur boðið uppá, bæði á eigin vegum en einnig í samstarfi við aðra aðila.
Hægt er að bjóða flest námskeiðin sem fjarnámskeið.
Sjálfsstyrking
Foreldrahlutverkið í nútímasamfélagi
Námskeiðið fjallar um samskipti foreldra við börn sín; jákvæð samskipti, skýr skilaboð, hrós, aga og mörk.
Skoða nánar >
Þú og þinn styrkur – 12 ára stelpur
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 12 ára stelpur þar sem unnið er með styrkleika þeirra og samskipti við sjálfar sig og hverja aðra. Samvinnuverkefni Hugrekkis – ráðgjafar og fræðslu og Léttari Lausna – samskipta og fjölskylduráðgjafar.
Skoða nánar >
Hver er sjálfsmyndin þín, mín kæra?
Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur þar sem unnið er með margar hliðar sjálfsmyndarinnar og hvernig hægt er að hafa sjálf áhrif á hana.
Skoða nánar >
Gegn ofbeldi
Ofbeldi gegn börnum
Námskeið fyrir fagfólk sem vinnur með börnum – og alla aðra sem vilja fræðast um ofbeldi gegn börnum.
Skoða nánar >
Heimilisofbeldi & ofbeldi í parasamböndum
Skoða nánar >
Færni í fjarþjónustu
Fjarþjónusta fagaðila – þjónusta 21. aldarinnar
Heilbrigðisstarfsfólk og aðrir fagaðilar sem vilja vinna ráðgjöf og meðferð í gegnum fjarþjónustu. Fjarnámskeið.
Skoða nánar >
Fagleg fjarþjónusta við viðskiptavini
Á námskeiðinu er fjallað um að hverju þarf að huga varðandi öryggi samskipta og tæknibúnaðar í fjarþjónustu.
Skoða nánar >
Stafræn nærvera
Á námskeiðinu er fjallað um það hvernig við tryggjum sem best góða nærveru í fjarþjónustu við viðskiptavini.
Skoða nánar >
Sérsniðin námskeið
Ert þú að leita að sérstöku námskeiði á sviði félagsráðgjafar, sjálfsstyrkingu eða samskiptum fyrir þig og þinn hóp?
Hægt er að senda fyrirspurnir á hugrekki@hugrekki.is til að fá sérsniðin námskeið og/eða fyrirlestra fyrir hvers kyns hópa – bæði stóra og smáa. Þau geta til dæmis fjallað um:
- Sjálfsstyrkingu
- Sjálfsrækt út frá ýmsum þáttum – bæði í einkalífinu og vinnunni… getur verið tilvalið t.d. fyrir saumaklúbbinn
- Skipulagstækni og -færni
- Ofbeldi gegn börnum
- Heimilisofbeldi
- Kynferðisofbeldi (t.d. námskeið fyrir unglinga)
- Samskipti í fjölskyldum
- Samskipti í samböndum
- Samskipti í vinahópnum (t.d. námskeið fyrir unglinga)
- Samskiptafærni út frá allskonar sjónarhornum
- Virðing og samskipti á vinnustöðum
- Foreldrafærni
- Fjarþjónusta ráðgjafar og meðferðarvinnu út frá ýmsum sjónarhornum