Um Hugrekki

Stofnandi og eigandi Hugrekkis er Ingibjörg Þórðardóttir – félagsráðgjafi, MA.

Ingibjörg útskrifaðist með starfsréttindi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands 2007 og hlaut starfsleyfi heilbrigðisráðherra sem félagsráðgjafi á sama tíma.  Ingibjörg lauk meistaranámi í félagsráðgjöf 2014 og diplómanámi í fjarmeðferð árið 2018. Nánar um menntun og bakgrunn Ingibjargar.

Ingibjörg hefur einlægni, heiðarleika, samkennd og virðingu að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Hún leggur sig ávallt fram um að vera fagleg og um leið mannleg – með öllu sem því tilheyrir – og vinnur út frá því að allar manneskjur hafi styrkleika og áskoranir og að í samvinnu getum við tekist á við flest í lífinu.

Ingibjörg er meðlimur í samtökunum ISPCAN sem eru alþjóðasamtök gegn ofbeldi á börnum.

Ingibjörg hefur langa reynslu af því að vinna með þolendum ofbeldis og aðstandendum þeirra og hefur komið að störfum í þeim málaflokki frá árinu 2005. Hún hefur einnig sinnt meðferð og ráðgjöf fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur. Hægt er að lesa um hugmyndafræði og meðferðarnálgun Ingibjargar hér.

Þá hefur Ingibjörg einnig verið með ýmis konar fræðslu fyrir fagfólk um ofbeldi annars vegar og fjarheilbrigðisþjónustu hins vera auk þess að vera með sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur og stúlkur.